Kerfishönnuður og -stjóri

Þorsteinn Hjálmar Gestsson

Þorsteinn Hjálmar Gestsson

Heimspekingur með víðtæka þekkingu á upplýsingatækni og reynslu af verkefnastjórnun og kennslu þegar kemur að innleiðingu og útfærslu á nýjum viðskipta- og verkferlum. Þorsteinn ætlar að breyta heiminum til hins betra með hagnýtri notkun upplýsingatækni. Bíddu bara!

framkvæmdastjóri

Guðmundur Kári Kárason

Guðmundur Kári Kárason

Lögfræðingur með haldbæra reynslu af uppbyggingu og stjórnun sprotafyrirtækja. Guðmundur hefur djúpstæðan áhuga á líkamsrækt og aðhyllist Paleo hugmyndafræði. Verðmætasköpun, einföldun á flóknum hlutum og stöku sinnum flæking á einföldum hlutum er meðal þess sem Guðmundur hefur áhuga á.

vefari

Einar Gíslason

Einar Gíslason

Vefari með umfangsmikla reynslu af bæði gerð vefsíðna og verkefnastjórnun. Hann er sérfræðingur í TYPO3 og vottaður í PRINCE2. Hann rekur eigið fyrirtæki, einarsvan.com, þar sem hann starfar með dönskum og íslenskum viðskiptavinum. Einar er með neikvæða ( -2%) fituprósentu og líður best eftir #fightgonebad.

Vörumerkjaráðgjafi

Stig Inge

Stig Inge

Einkenni (i. identity) eru Stig ær og kýr. Hann hefur undanfarin ár unnið með ýmsum vel, lítið og ekkert þekktum fyrirtækjum í Evrópu við sköpun á einkennum einstakra vörumerkja/fyrirtækja. Stig líður ekki vel nema hann sé best klæddi maðurinn í herberginu, sem er iðulega tilfellið að hans eigin mati.