
Nagli.is hefur tekið við hlutverki Viðhaldsbókar hússins sem hefur verið á vefnum V3.is. Notendur V3.is munu framvegis geta nálgast upplýsingar um viðhald eigna sinna og skráð í viðhaldsbókina í gegnum vefinn www.nagli.is.
Notendur V3.is eru hvattir til að skrá sig inn á www.nagli.is og skoða hvað þar er í boði.
Vefurinn Viðhaldsbók hússins, V3.is, var opnaður vorið 2007. V3.is þakkar notendum sínum samstarfið síðast liðin fimm ár og hvetur alla til að halda utan um viðhaldið á eign sinni og gerast virkur notandi á www.nagli.is.